Um Kubbi

Kubbi gerir alvöru fréttir einfaldar og skemmtilegar fyrir krakka — svo öll börn geti fylgst með því sem er að gerast og æft sig í lestri á sínum hraða.

Hvað er Kubbi?

Kubbi er fréttavefur fyrir krakka á aldrinum 6–10 ára. Við tökum alvöru íslenskar fréttir og breytum þeim í stuttar og einfaldar greinar sem auðvelt er að lesa. Hverja grein má lesa á þremur þyngdarstigum — Létt, Passlegt og Krefjandi — svo hvert barn finnur það sem hentar því. Erfið orð eru útskýrð og í lokin eru spurningar til að athuga hvort þú skildir greinina. Fyrir hvert rétt svar færðu kubba í safnið þitt.

Hvaðan kom hugmyndin?

Hugmyndin kviknaði í raun út frá því að sonur stofnanda Kubba vildi ekki þurfa að lesa heima í sumar. Þá var honum boðið að lesa íþróttafréttir í staðinn, og það samþykkti hann.

En svo fór hugsunin af stað: fréttamiðlar innihalda líka fréttir sem henta börnum alls ekki. Íþróttafréttir fjalla meira að segja oft um mál sem eiga lítið erindi við börn — ekki beint gott lesefni fyrir þau heldur.

Þannig varð Kubbi til: staður þar sem börn geta lesið alvöru fréttir sem eru valdar og endurskrifaðar með þau í huga, fengið sjálfstraust í lestri og haft gaman af því í leiðinni.

Hvernig eru greinarnar skrifaðar?

Greinarnar byrja sem alvöru fréttir frá íslenskum fréttamiðlum (eins og mbl.is). Síðan hjálpar gervigreind (sams konar tækni og knýr spjallforrit eins og ChatGPT) okkur að endurskrifa þær á einfaldari íslensku sem hentar börnum, búa til útskýringar á erfiðum orðum og spurningar úr efninu.

Gervigreindin reynir líka að sía burt fréttir sem eiga ekki erindi við börn, eftir bestu getu, svo það sem birtist á Kubba sé valið með þau í huga.

Af því að greinarnar eru skrifaðar með gervigreind getur stundum slæðst inn villa. Við hvetjum því fullorðna til að lesa með börnunum og spjalla um fréttirnar saman.

Hverjir standa á bak við Kubbi?

Kubbi er búinn til af sérfræðingi í gervigreind með mikla reynslu af forritun og af því að stofna og reka fyrirtæki, ásamt meðstofnanda sem er starfandi kennari. Við þróun appsins nýtur Kubbi stuðnings frá starfandi kennurum, sem hjálpa til við að tryggja að efnið henti börnum bæði hvað varðar lestur og innihald.