
Erling Haaland hefur skorað sjö mörk á heimsmeistaramótinu og hjálpað Noregi að vinna Brasilíu.
Erling Haaland er frábær fótboltamaður sem spilar fyrir norska landsliðið. Hann hefur verið að gera það mjög gott á í Norður-Ameríku í sumar.
Haaland hefur skorað sjö mörk í fimm leikjum. Hann er leikmaður mótsins ásamt Lionel Messi og Kylian Mbappé. Þetta er mjög flott afrek!
Í gærkvöldi skoraði Haaland bæði mörk Noregs í 2:1-sigri á Brasilíu. Með því tryggði hann Noregi sæti í átta liða . Noregur mun mæta Englandi í næsta leik í Miami á laugardagskvöldið.
Sigurinn á Brasilíu er einn af stærstu sigrum sem norska karlalandsliðið hefur náð. Haaland sagði eftir leikinn að hann væri orðlaus yfir því sem hann hefur náð að gera fyrir Noreg á mótinu.
5 orð úr greininni. Lærðu hvað þau þýða og fáðu kubb!
Spurning 1 af 3
Hversu mörg mörk hefur Erling Haaland skorað á heimsmeistaramótinu?