
KR og Grótta gerðu jafntefli en ÍA vann Tindastól á Sauðárkróki.
KR og Grótta spiluðu fótboltaleik í kvöld en hvorugt liðið skoraði mark. Þetta var leikur í 1. deildar kvenna í fótbolta og fór fram á Meistaravöllum.
Grótta er í efsta sæti með 29 en KR er í öðru sæti með 23 stig. Grótta hefur þó leikið einum leik meira en KR. HK er í þriðja sæti með 20 stig.
ÍA vann 4:2 sigur á Tindastóli á Sauðárkróki. Með þessum sigri fór ÍA upp í fjórða sætið með 18 stig. Tindastóll er í tíunda og sæti með aðeins þrjú stig.
Alexa Maletis skoraði tvö mörk fyrir ÍA. Hin mörkin skoruðu Alliyah Rowe og Nadía Steinunn Elíasdóttir. Fyrir Tindastól skoruðu Rita Lang og Cecile Pedersen.
5 orð úr greininni. Lærðu hvað þau þýða og fáðu kubb!
Spurning 1 af 3
Hvernig fór leikurinn milli KR og Gróttu?