
Íslands landslið í fótbolta spilar fjóra leiki í Þjóðadeildinni. Þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er spenntur fyrir verkefninu.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mun spila fjóra í C-deild Þjóðadeildarinnar. Fyrsti leikurinn verður gegn Eistlandi á 26. september. Síðan spila þeir við Lúxemborg á og koma aftur heim til að spila við Búlgaríu 3. október. Þeir enda svo á útileik við Eistland 6. október.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson sagði á blaðamannafundi að hann væri spenntur fyrir að spila fjóra leiki í sama verkefninu. Hann sagði að það væri öðruvísi en að spila tvo leiki eins og venjulega. Arnar sagði að liðið þyrfti að æfa mikið og ferðast á milli leikja.
Í leikjunum fjórum eru tólf í boði. Efsta liðið í riðlinum fer upp í B-deildina. Arnar sagði að liðið myndi reyna að ná í öll tólf stigin en að útileikirnir væru alltaf erfiðir.
Arnar sagði líka að það væri mikilvægt að sýna öllum virðingu. Hann sagði að það væri ábyrgð að vera efsta liðið í riðlinum og að liðið þyrfti að spila vel til að ná góðum .
5 orð úr greininni. Lærðu hvað þau þýða og fáðu kubb!
Spurning 1 af 3
Hvað heitir landsliðsþjálfari Íslands?